Innanhússarkitektúr
og hönnunarþjónusta
Alata
Alice
Open Sans
Noto Sans
Bebas Neue
Great Vibes
Rock Salt
Exo
Belgrano
Overlock
Cinzel
Indie Flower
Staatliches
Roboto Slab
Lato
Noto Serif
Open Sans
Montserrat
Ubuntu
Rubik
Delius
Amiri
Montserrat
Innanhússarkitektúr og hönnun
Ég get umbreytt heimili þínu, sumarbústaðnum, skrifstofu, verslun, veitingarstað, hóteli eða í raun hvaða rými sem er. Ef þörf krefur verða gerðar tillögur um að að brjóta niður veggi, búa til nýja, setja upp eða breyta gluggum, hurðum, lýsingu, innréttingum o.s.frv. Ég tek að mér allt frá einu herbergi upp í hótel og stór verslunarrými
Þú færð arkitekta teikningar með nákvæmum mælingum, þrívíddarteikningar og hönnunarskýrslu.
Ég get ákvarðað hvaða fyrirtæki eða iðnaðarmenn henta best fyrir þig og komið þér í samband. Einnig mun ég fylgja verkefninu eftir.
Innanhússhönnun
Ég hjálpa eigendum heimila eða fyrirtækja að búa til útlit sem styður stíl þeirra. Ég mun vinna með fyrirfram ákveðið fjármagn til að breyta heimili þínu eða fyrirtæki án byggingarvinnu.
Þetta er til dæmis ráðgjöf um innréttingar, gólfefni, málningu, gluggatjöld, staðsetningu húsgagna og kaupmöguleika.
Þú færð 2D arkitekta teikningar og hönnunarskýrslu.
Innanhússráðgjöf
Ég get ráðlagt þér hvernig þú getur gert heimið þitt hlýlegra eða viðskiptarýmið þitt faglegra og skilvirkara.
Þessi þjónusta á við allt frá herbergi á heimili til atvinnuhúsnæðis.
Þú færð ráðgjöf varðandi umrætt rými.
Ertu ekki viss um hvaða þjónustu þú þarft fyrir næsta verkefni?
Hafðu samband og við finnum það út saman.